Þriðjudagur 11. mars, 2025
3.3 C
Reykjavik

Sanni vinurinn Jens Garðar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stundum kemur stuðningur úr átt sem fólk á síst von á en það gerðist heldur betur í gær þegar Jens Garðar Helgason, nýkjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins, lét hafa eftir sér stjórnmálamenn gætu ekki lækkað ríkisstyrki til fjölmiðla eftir hentisemi.

Það er vissulega rétt hjá Jens Garðari og ætti hann að nefna þetta við sem alla alþingismenn við fyrsta tækifæri og þá sérstaklega aðra þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Þeim hefur sumum hverjum lengi dreymt um að leggja RÚV niður án árangurs. Sama hversu mikið þeir reyna.

En það hlýtur að vera gott fyrir blaðamenn, burt séð frá vinnustað, að hafa sannan vin fjölmiðla í jafn stóru hlutverki innan Sjálfstæðisflokksins. Slíkir eru ekki á hverju strái og verður gaman að sjá Jens fylgja því eftir á Alþingi og mögulega síðar sem ráðherra …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -