Ennþá eru þónokkrar vonir innan Vinstri grænna að flokkurinn nái að halda lífi þrátt fyrir að hann hafi ekki náð manni inn á Alþingi í síðustu kosningum. Til að þess að bjarga flokknum frá algjöru þroti þarf hann undir stjórn Svandísar Svavarsdóttur að gera allt sem í hans valdi stendur til að halda sveitarstjórnarmönnum sínum þegar gengið verður til kosninga vorið 2026.
Sú áætlun kann að hafa haft áhrif á breytt viðhorf hjá Líf Magneudóttur, eina borgarfulltrúa flokksins, en hún er nú komin í meirihlutasamstarf eftir að hafa verið í minnihlutanum allt kjörtímabilið. Minnugir kjósendur Vinstri grænna í borginni hljóta að vera sérstaklega hissa í ljósi þess að Líf lýsti því yfir eftir sveitarstjórnarkosningar 2022 að hún myndi ekki taka þátt meirihlutasamstarfi á kjörtímabilinu því flokkurinn þyrfti að fara í naflaskoðun. Vakti það mikla gremju meðal margra kjósenda sem töldu sig hafa sóað atkvæði sínu …