Flugmenn tveggja suðurkóreskra herþota sprengdu fyrir slysni þorp í landinu meðan heræfingu stóð yfir. Nogok er þorpið sem um ræðir og það stendur nærri landamærum Suður-Kóreu og Norður-Kóreu en atvikið átti sér stað á þriðjudaginn klukkan 10:00 um morgun. Í myndbandi sem hefur birst af þessari ólánssprengjuárás sjást hús og bílar springa í loft upp. Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum í landinu lést ekki neinn en fjórir einstaklingar slösuðu alvarlega og þurftu að fara í bráðaaðgerðir á sjúkrahúsi. Þá slösuðust 11 aðrir einstaklingar lítillega. Þoturnar sem skutu eldflaugunum voru af gerðinni KF-16 og hafa yfirvöld hafið rannsókn á hvernig þetta gat gerst. Þá hefur öllum heræfingum sem nota skotfæri verið frestað meðan málið er í rannsókn.