Ekki voru allir sáttir í messu sem fór fram í Spokane í Bandaríkjunum í vikunni en myndband af henni fer eins og eldur í sinu um internetið. Í myndbandinu sést þegar maður hleypur að presti kirkjunnar og kýlir og ræðst á hann. Séra David Gaines var í miðri bæn og krjúpandi þegar maðurinn stóð upp úr sæti sínu og hleypur í áttina að honum. Aðrir prestar og kirkjugestir voru fljótir að hjálpa séra Gaines og náðu árásarmanninum af honum. Lögreglan kom svo innan skamms og handtók manninn. Samkvæmt upplýsingum frá fjölmiðlum í Bandaríkjunum heitir maðurinn Joshua Summer og hefur hann verið ákærður fyrir alvarlega líkamsárás. Séra Darrin Connall, meðprestur Gaines, sagði við fjölmiðla að maðurinn hafi setið rólegur í messunni í um það bil 45 mínútur áður en hann réðst á Gaines. Til allrar hamingju slapp séra Gaines ómeiddur frá árásinni.