Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar létu áhugaverð ummæli falla í vikunni. Hér eru nokkur.
„Spurning hvort þetta endurspeglar fjölmiðilinn Markaðinn eða fjölmiðla yfirleitt eða bara samfélagið, en í nýútkomnum Markaði Fréttablaðsins eru 22 ljósmyndir af karlmönnum (að meðtöldum myndum af blaðamönnum sem allir eru karlkyns) en 2 myndir af konum,“
segir Illugi Jökulsson rithöfundur í Facebook-hópnum Fjölmiðlanördar, þar sem hann setur út á efnistök nýjasta tölublaðs Markaðar Fréttablaðsins.

„Í dag kynnti Samfylkingin nýtt merki, þar er um að ræða hvítan hring á rauðum fleti. Ætli þeim hafi á einhverjum tímapunkti dottið í huga að gúgla hverskonar samtök noti helst það myndmál? Samfylkingin á ekkert skylt við þessi samtök og þess vegna veltir maður fyrir sér af hverju þetta myndmál sé notað,“
segir Elliði Vignisson sveitarstjóri í færslu á Facebook, og uppskar fjölda ummæla og gagnrýni.

„Þetta er svo brjóstumkennanlegt kjaftæði í þér. Hefur þú aldrei séð rautt lógó eða hring? Tökum dæmi,“ svarar Karen Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Samfylkingar, færslu Elliða og birtir mynd með athugasemd sinni.

Mynd / Facebook
„Já, ég er með spurningu fyrir Þórólf. Nú stendur til að opna sundlaugar fyrir almenning 18. maí. Stendur til að halda áfram að leyfa gömlum mönnum að þurrka á sér punginn með hárblásurunum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum eða þurfa þeir að bíða eftir næstu tilslökun?“
spyr Atli Fannar Bjarkason, verkefnastjóri vefútgáfu og samfélagsmiðla á RÚV, á Twitter.
Já ég er með spurningu fyrir Þórólf. Nú stendur til að opna sundlaugar fyrir almenning 18. maí. Stendur til að halda áfram að leyfa gömlum mönnum að þurrka á sér punginn með hárblásurunum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum eða þurfa þeir að bíða eftir næstu tilslökun?
— Atli Fannar (@atlifannar) May 6, 2020

„Ég bý svo vel að hafa á heimilinu sérfræðing í sóttvörnum og geðlækningum. Og ekki bara það heldur er sérfræðingurinn ljóðskáld gott. Grunar að eftirfarandi kveðskapur, sem var skilinn eftir á náttborði mínu, sé kominn frá þessum mikla sérfræðingi,
Ástríðan er ekki dauð
þótt öðru sé að hraka
holdið orðið eins og brauð
sem á eftir að baka.
Þannig er að eldast
ekkert fær því breytt
grána bæði og geldast
og geta ekki neitt.“
Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um fjölskyldulífið í færslu á Facebook.
