Leikkonan Laverne Cox er fyrsta transkonan sem prýðir forsíðu breska Vogue í 103 ára sögu tímaritsins.
Laverne Cox prýðir forsíðuna ásamt 14 öðrum konum á tölublaðinu sem Meghan Markle, hertogaynja af Sussex, ritstýrir ásamt aðalritstjóra blaðsins, Edward Enningful.
Laverne Cox sagði þetta vera mikinn heiður þegar blaðamaður Vogue náði tali af henni daginn sem Peter Lindbergh myndaði hana fyrir forsíðuna.
Þegar blaðamaður spurði hana hvernig tilfinningin væri þurfti hún að halda aftur af tárunum. „Vá. Þetta er stór dagur fyrir mig,“ sagði hún.
„En ég er ekki fyrsta transkonan til að prýða forsíðu Vogue. Valentina Sampaio á forsíðu franska Vogue á heiðurinn að því og Indya Moore á forsíðu Teen Vogue. Það er dásamlegt að ég skuli ekki vera súr fyrsta. Ég elska þessa sögu. Ég fylgi í fótspor þeirra.“
Sjá einnig: Meghan Markle gestaritstjóri Vogue

