Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Tveir karlmenn á sjötugsaldri ákærðir fyrir kókaínsmygl – Gripnir á gistiheimili á Egilsstöðum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tveir erlendir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir smygl á rúmu kílói af kókaíni til landsins. Höfðu mennirnir komið til landsins með Norrænu, en lögreglan greip þá á gistiheimili á Egilsstöðum.

Samkvæmt Austurfrétt kemur þetta fram í ákæru embættis héraðssaksóknara.

Mennirnir höfðu alls rúmlega 1,1 kíló af kókaíni með sér, sem þeir eru taldir hafa ætlað að selja hér á landi.

Þurftu mennirnir að fara yfir þrjú landamæri með kókaínið; efnið höfðu þeir með sér frá Rotterdam í Hollandi og fóru með það í gegnum Þýskaland og Danmörku, þar sem þeir fóru svo um borð í Norrænu.

Borgin Rotterdam í Hollandi

Komu þeir svo til landsins með ferjunni um miðjan október.

- Auglýsing -

Annar mannanna er Hollendingur, en í hans fórum fundust 677 grömm, en þau fundust í káetu hans í ferjunni sem og í farangri hans á gistihemilinu.

Hinn maðurinn er Spánverji, en fundust rúm 400 grömm í hans fórum. Hafði hann falið þau innvortis og í safafernu sem fannst á gistiheimilinu.

Fangelsið á Hólmsheiði

Mennirnir, sem báðir eru á sjötugsaldri, er í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði og bíða réttarhalda.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -