Rósa Elísabet er mjög ósátt við hvernig staðið var að hirðingu á leiðum ættingja í kirkjugarði Heydalakirkju í Breiðdal.
„Við erum bæði sorgmædd og reið og þetta eiginlega búið að eyðileggja jólin fyrir fjölskyldunni,“ segir Rósa Elísabet Erlendsdóttir í samtali við Austurfrétt.
Fjölmargir hafa samsinnt Rósu á Facebook þegar hún gagnrýnir snyrtingu kirkjugarðsins sem sóknarnefndin stóð að seint í sumar. Þökum var lagt yfir stór svæði, tré og hríslur skornar og fjarlægðar og svo sást einnig brotinn kross í garðinum. Rósa kallar þetta skemmdarverk á leiðum fólks.

„Við fjölskyldan höfum fyrir venju að heimsækja tvisvar á ári, votta virðingu okkar, snyrta og slíkt. Nú komum við að og það búið að saga niður tré sem pabbi setti niður hjá leiði bróður síns og móður. Það var búið að þökuleggja yfir blóm á öðrum leiðum í garðinum og allt án þess að hafa neitt samband við ættingja. Þetta eru alveg hræðilegar meðfarir.“

Í svari sóknarnefndarinnar er talað um að hirðing garðsins hafi verið þörf en hún hafi verið unnin í sjálfboðavinnu. Óskaði sóknarnefndin eftir áhugasömum til að aðstoða við verkið en fáir hafi sýnt því áhuga. Þá segir að ætlunin hafi ekki verið að eyðileggja neitt en að samkomulag hafi orðið um að fella illa farin tré en halda í þær fjölæru plöntur sem höfðu verið gróðusettar. Aukreitis segir í svarinu að ógjörningur hafi verið að hafa samband við alla ættingja hinna látnu þar sem þeir skipi tugum ef ekki hundruðum. Biðst nefndin afsökunar og lofar betrun.
Rósa Elísabet tekur ekki vel í afsökunarbeiðnina.
„Heldur þetta fólk virkilega að þessi hálfsöguðu tré muni ná sér að nýju eða að blóm sem lifað hafa lengi á leiðum rífi sig gegnum þökur? Það er varla að fara að gerast og mér er ekki runnin reiðin yfir að ekki skyldi vera haft beint samband við aðstandendur áður en farið var í svona lagað.“

