Laugardagur 14. mars, 2026
-1.7 C
Reykjavik

Sjáið jólahúsin á Ísafirði! Magnaðar jólaskreytingar lýsa upp Djúpið og létta lund fólksins MYNDIR

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í Ísafjarðarbæ eru einhverjar mögnuðustu skreytingar utanhúss. Langflestir húseigendur á Ísafirði og í Hnífsdal skreyta hús sín þótt auðvitað séu undantekningar að finna þar sem grár og dimmur veruleiki virku daganna hjúpar húsin. En svo eru það hin sem eru upplýst í bak og fyrir með bæði frumlegum og afgerandi hætti. Skýringin á vilja Vestfirðinga til að lýsa upp umhverfi sitt gæti legið í þeirri staðreynd að veturinn þar vestra er í senn dimmur og harður og kærkomið tækifæri til að skreyta duglega og létta lund fólksins.

 

- Auglýsing -
Mynd: Guðrún Gunnsteinsdóttir

Mannlíf gerði könnun á velskreyttum húsum í bænum. Ekið var skipulagslítið um Ísafjörð og Hnífsdal og teknar myndir þar sem ástæða þótti til. Ekki skal fullyrt um það hvort þarna sé að finna best skreytta húsið á svæðinu en óneitanlega er líklegt að það sé að finna í myndunum sem birtast með. Eitt fegursta fyrirbæri jólaljósanna er að finna í þaulskreyttum kirkjugarðinum í Hnífsdal sem kúrir á bakkanum ofan við sjóinn. Í bakgrunni er sjálf Snæfjallaströndin, handan Ísafjarðardjúps.

Þeir sem vilja mega gjarnan setja í athugasemd neðan fréttar hvert sé fegursta húsið í bænum.

Kirkjugarðurinn i Hnífsdal. Mynd: Guðrún Gunnsteinsdóttir.
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -