Seyðfirðingar brugðust sumir hverjir ókvæða við frétt sem birtist á heimasíðu Múlaþings í gærmorgun. Í fréttinni stóð að til stæði að taka fyrstu skóflustunguna að nýjum íbúðarkjarna fyrir eldri borgara á gamla íþróttavellinum. Um aprílgabb var að ræða en spurningin er, hver gabbaði hvern?
Samkvæmt Austurfrétt birtist frétt rétt fyrir klukkan tíu í gærmorgun, um að nú ætti að taka fyrstu skóflustunguna fyrir nýjum íbúðarkjarna sem byggja á á gamla íþróttavelli bæjarins. Seyðfirðingar voru hvattir til að mæta í búningum við hæfi og helst með fána og freyðivín. Þá var sennilegast verið átt við hinn gula búning Hugins Seyðisfirði.
Ekki var fréttin búin að vera lengi inni þegar hún var merkt sem aprílgabb enda var 1. apríl einmitt í gær. Í hádeginu var fréttin svo fjarlægð. Í yfirlýsingu sem birtist á Facebook-síðu Múlaþings í gær biðst starfsfólk skrifstofunnar á Seyðisfirði afsökunar á athæfinu og kveðst vera leitt að hafa sært eða móðgað íbúa bæjarins með gríni sem sett var fram í góðri trú.
Samkvæmt heimildum Austurfréttar tóku að berast athugasemdir á skrifstofu Múlaþings, skömmu eftir að fréttin fór í loftið. Íbúðakjarninn sem vissulega mun rísa á gamla íþróttavellinum er ætlaður fyrir eldra fólk á Seyðisfirði en hópur þess hefur nú þegar fest sér íbúðir í nýja kjarnanum.
Ef athugasemdir við afsökunarbeiðninni á Facebook-síðu Múlaþings eru skoðaðar er ekki að finna einn móðgaðan Seyðfirðing enda annálaðir húmoristar. Einn þeirra segir að þau einu sem hafi látið gabbast hafi verið fréttasmiðirnir sjálfir: „Þetta er besta, langbesta apríl gabb ever! Það er að segja að þykjast móðgast yfir gabbinu. Og að biðjast afsökunar á því. Kæru vinkonur. Þið hlupuð 1. Apríl. Þetta gabb var svo saklaus að það er ekki möguleiki að móðgast yfir því. Nema sveitarstjórinn kannski, það er hann sem fær pillu.“
Í frétt Austurfréttar kemur fram að húsnæðisskortur sé talsverður á Seyðisfirði en skriðuföllin í desember 2020 gerðu illt verra. Í kjölfar þeirra þurfti að finna nýtt land undir íbúabyggð og varð gamli íþróttavöllurinn fyrir valinu. En þrátt fyrir að skipulagning sé hafin og úthlutun íbúa hefur átt sér stað, hafa framkvæmdir látið standa á sér.

