Framvegis mun AFL Starfsgreinafélag tilkynna alla meðferð skotvopna, sem ekki samræmast reglum, til lögreglu. Hefur félagið undanfarið hert eftirfylgni með umgengni um bústaði félagsins á Einarsstöðum á Héraði.
Í nóvember síðastliðnum var lögreglan kölluð að sumarhúsabyggðinni Einarsstöðum, eftir að rjúpnaskytta ógnaði unglingum sem þar voru að skemmta sér, með byssu. Fram kemur í frétt Austurfréttar var byssumaðurinn ekki í bústað á vegum AFLs en helmingur húsanna á Einarsstöðum eru í eigu félagsins.
Fram kemur í fréttabréfi félagsins, sem kom út fyrir skemmstu, að á síðustu árum hefur tvisvar sinnum verið hleypt af skotum innan Einarsstaða. Voru það slysaskot er verið var að meðhöndla byssur sem taldar voru óhlaðnar. Hlupu skotin úr byssunum innandyra en ollu ekki teljandi skemmdum.
Þar kemur einnig fram að öll meðferð skotvopna í bústöðum AFLs, sem ekki samrýmist lögum verði nú tilkynnt til lögreglu og þeir seku útilokaðir frá Einarsstöðum í talsverðan tíma. Þá segir einnig í fréttablaðinu að skemmtanahald og ólæti hafa verið óvenju mikið að undanförnu í sumarhúsabyggðinni. Hafi þurft að kalla lögregluna til og í einhverjum tilfellum fjarlægja fólk úr húsum um miðjar nætur. Við brotum á reglum um að ró eigi að vera komin á klukkan tíu á kvöldi, fer fólk í allt að tveggja ára bann frá leigu á bústöðum félagsins.
Aukreitis kemur fram að sóðaskapur hefur aukist í bústöðunum. Umsjónarfólk sé fram í miðja viku að tína upp tókbakspúða sem hafa verið losaðir allt í kringum bústaði. Segir þar að ekki sé bjóðandi að gestir geti ekki boðið börnum sínum að leika sér útivið vegna sóðaskaparins.

