Miðvikudagur 13. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Mygla aftur komin upp í Tónskólanum í Neskaupsstað – Líklega um mistök verktaka að ræða

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mygla er komin upp í Tónskólanum í Neskaupsstað og verður öll starfsemi hans færast í Nesskóla næstu mánuðina á meðan myglan er hreinsuð burt.

Samkvæmt frétt Austurfréttar virðist sem um mistök verktaka fyrir nokkrum árum hafi ollið myglunni nú. Verkfræðistofan EFLA framkvæmdi rannsókn á húsnæðinu og var þar staðfest að mygla væri í húsinu og að allt bendi til þess að framkvæmdir sem gerðar voru á húsinu fyrir fáeinum árum hafi ollið því að vatn komst undir gólfefni og valdið mygluskemmdum. Framkvæmdirnar þá voru einnig líka vegna myglu.

Skemmdirnar og umfang þeirra er nú metið að sögn fjölmiðlafulltrúa Fjarðarbyggðar en í framhaldinu verður hægt að leggja mat á kostnað og verktíma viðgerða. Vegna þess hve tímafrek viðgerðin er er ljóst að frekari starfsemi í húsinu frestast fram á sumarið.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -