- Auglýsing -
Barn var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi til aðhlynningar og síðan til Reykjavíkur til frekari aðstoðar, eftir að hundur beit það í andlitið.
Samkvæmt dagbók lögreglunnar á Suðurlandi var barnið bitið í andlitið af hundi á bóndabæ í uppsveitum Árnessýslu en barnið var gestkomandi á bænum. Atvikið gerðist fyrir helgi en barnið var útskrifað af sjúkahúsi sama kvöldi eftir að gert hafði verið að sárum þess.
Ekki er upplýst um örlög hundsins sem beit barnið.
Ekki náðist í lögregluna á Suðurlandi við gerð fréttarinnar.

