Afar fallegur viðburður verður í Borgarbyggð næstu helgi en þá munu fermingarbörn dansa í sólarhring, frá föstudegi til laugardags og safna í leiðinni fyrir vatnsbrunni í Eþíópíu.
Samkvæmt Skessuhorni munu alls 45 krakkar taka þátt og munu þau skiptast á að dansa frá klukkan tvö á föstudaginn til tvö á laugardaginn, auk þess sem þau fá fermingarfræðslu og vinna ýmist verkefni.„Vatnssöfnun fermingarbarna er eitt stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Okkar fermingarbörn hér í sveitinni búa ekki við að geta gengið á milli húsa og safnað pening og ætla þau að leysa það með sólarhrings dansmaraþoni og safna um leið áheitum,“ sagði Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur í Reykholti í samtali við Skessuhorn.
Söfnunin fer fram í Reykholtskirkju en Kristín Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi Kirkjunnar mun kíkja til barnanna og vera með fræðslu um söfnunina. „Hún mun segja þeim nákvæmlega af hverju við erum að safna fyrir þessu málefni, hvert brunnurinn sem þau eru að safna fyrir mun fara og svo fá þau að sjá myndband frá því svæði,“ segir Hildur Björk.
Segir Hildur Björk ennfremur í samtalinu við Skessuhorn að það verði líf og fjör þegar krakkarnir gista í kirkjunni um næstu helgi. „Og það er ekkert skemmtilegra þegar maður gistir í kirkju en að fara í ratleik svo við munum að sjálfsögðu gera það,“ segir Hildur Björk. „Við erum svo með pizzahóp sem ætlar að baka pizzur en þau hafa skipt verkum og munu sjá að mestu um allt sjálf þennan sólarhring. Það er svo ótrúlega skemmtilegt að gista í kirkju og það býður upp á skemmtilegar umræður sem fermingarbörnin munu taka þátt í svo ég er mjög spennt,“ bætir hún við.
Fermingarbörnin hafa alfarið séð sjálf um að safna áheitum með því að hringja í fólk og heimsækja nágranna sína. Fólk ræður sjálft hversu há upphæðin er sem það gefur en þegar börnin hafa lokið dansinum láta fermingarbörnin alla vita sem skráð hafa sig á þeirra lista og peningunum verður safnað inn á reikning. Aðspurð um það hvernig fólk geti styrkt verkefnið, sé ekki búið að hringja í það segir Hildur að það sé hægt að heyra í henni eða Heiðrúnu Bjarnadóttur í Borgarnesi.

