Heimastjórn Djúpavogs gagnrýnir harðlega áform Eimskips að skerða þjónustu sína í bænum á næstunni.
„Hér hefur ekki verið meira að gera í tíu til fimmtán ár og það skýtur mjög skökku við að draga úr þjónustu á slíkum tímapunkti,“ sagði Eiður Ragnarsson, starfsmaður heimastjórnar Djúpavogs í samtali við Austurfrétt.
Ekki hafa áformin verið staðfest formlega en Eimskip hyggst skerða þjónustu sína á Djúpavogi á næstunni og hefur starfsfólki verið sagt að búa sig undir 50% starfshlutfall með tilheyrandi baga fyrir þann fjölda fyrirtækja á svæðinu sem nýta þjónustuna.
Eiður segir að málið snúist ekki aðeins um störf á svæðinu. Uppgangur hafi verið í bænum og útlit sé fyrir talsvert meiri umsvif á næstunni en verið hefur lengi. Segir hann að við slíkar aðstæður eigi stórfyrirtæki að sjá sóma sinn í að styrkja þjónustu og auka viðveru sína á staðnum í stað þess að draga seglin.
Í nýlegri bókun taldi heimastjórn Djúpavogs, ástæðu til að gagnrýna þessi áform harðlega. Kemur þar fram að búið sé að flytja um fimm þúsund tonn af afurðum frá Djúpavogi, fyrstu þrjá mánuði ársins og að hlutdeild Eimskips í þeim dágóður. Heimastjórnin hvetur forsvarsmenn til að endurskoða áform sín og bæta frekar þjónusta en ekki draga úr henni.

