Karlmaður var nýlega dæmdur af Héraðsdómi Austurlands í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hótað öðrum barsmíðum. Mennirnir deildu um álkassa.
Samkvæmt Austurfrétt kom sá ákærði eitt júníkvöld í fyrra, að heimili hins mannsins, ásamt vini sínum. Var honum gefið að sök að hafa þar haft í hótunum við manninn og ógnað honum. Hótaði hann meðal annars að brjóta framtennurnar á manninum á tröppunum.
Ástæða deilunnar milli mannanna er álkassi sem sá sem kærði smíðaði. Var kassinn geymdur hjá félaga mannsins þar til hann hvarf árið 2017. Sá ákærði sagðist hafa fundið kassann á brotajárnshaug og tekið hann.
Sá er smíðaði álkassann sá síðar kassann hjá manninum og hringdi í hann og bauð honum pening fyrir kassann. Þegar því boði var hafnað fór hann og sótti kassann. Þegar sá ákærði kom á svæðið tók hann eftir að fleira en álkassinn var horfið. Bað hann því vin sinn að keyra sig að heimili smiðsins.
Fyrir dómi viðurkenndi maðurinn að hafa verið reiður og hávær þegar hann mætti heim til mannsins og slegið flötum lófa á húsið til að leggja áherslu á orð sín. Segist hann ennfremur ekki hafa ætlað að berja manninn, þetta hafi bara verið rifrildi milli tveggja manna, engin ögrun hafi átt sér stað né hótanir. Að lokum var hann dreginn í burtu af vini sínum. Þegar lögreglan kom á vettvang var því allt yfirstaðið.
Vitnin að atburðinum, þar með talinn vinurinn og fleiri sjónarvottar, studdu ekki þessa frásögn mannsins, en vinurinn hafði fengið símtöl frá óþekktum aðilum um að draga framburð sinn til baka en lét sér ekki segjast.
Samkvæmt vitnunum var maðurinn augljóslega drukkinn og brjálaður þegar hann mætti að heimili kassasmiðsins. Hafi hann haft uppi nóg af hótunum, meðal annars um að brjóta framtennurnar á húsráðandanum. Sá hefði hins vegar ekki ögrað gestinum, heldur verið ákveðinn en rólegur.
Taldi dómurinn framburð vitnanna trúverðugan og með þeim hefði verið sannað að maðurinn hafi viðhaft gróf hótunarorð sem hefðu verið til þess fallin að vekja ótta húsráðandans um líf sitt og heilbrigði. Var hann því dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til næstu tveggja ára. Þar að auki þarf hann að greiða helming málskostnað, um 180 þúsund krónur.

