Þess er beðið með nokkurri eftirvæntingu hvort Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra snúi aftur af krafti inn á svið stjórnmálanna. Lilja hefur verið talin einhver efnilegasti stjórnmálamaður landsins og mikill vilji var til þess innan Framsóknarflokksins að hún yrði formaður. En í júní hvarf hún af sjónarsviðinu og í veikindaleyfi. Hún hafði verið undir miklu álagi í störfum sínum sem ráðherra og sætt harði gagnrýni fyrir að draga fyrir dóm konu sem fékk ráðherrann dæmdan fyrir jafnréttisbrot. Önnur skýring á veikindum hennar er að að sögn taugatrekkjandi samskipti ráðherra stjórnarinnar hafi orðið þess valdandi að hún lenti í svokölluðum bruna. Sjálf hefur hún engu svarað um framtíðina. En menn vona að hún nái fullum bata og snúi aftur í stjórnmálin og nái að rífa upp fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík …
Veikindi Lilju

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
