Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, gerir upp feril sinn í viðtali við Stundina þar sem margt áhugavert kemur fram. Meðal annars rifjar hann upp símtal við fyrrverandi forsætisráðherra. Davíð Oddsson hringdi í hann, ævareiður og hraunaði yfr hann, vegna þess að Tryggvi hafði gert alvarlegar og rökstuddar athugasemdir við skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar, frænda Davíðs, sem hæstaréttardómara. Símtalið var ógnandi og komst í fréttir DV á þeim tíma. Afleiðingin var sú að Davíð var kallaður á fund forsætisnefndar Alþingis og látinn skrifa undir skjal um að ekkert í þessa veru myndi endurtaka sig. Þetta var einskonar nálgunarbann. Seinna reiddist Davíð aftur þegar umboðsmaður gerði athugasemd við skipun Þorsteins, sonar hans, sem héraðsdómara. En hann hringdi ekki í það skiptið …
Þegar Davíð hraunaði yfir Tryggva

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
