Rósa Björk Brynjólfsdóttir, alþingismaður VG og seinna utan flokka, hefur nú stigið skrefið sem spáð hefur verið nokkrum sinnum á þessum vettvangi og skráð sig í Samfylkinguna þar sem eiginmaður hennar, Kristján Guy Burgess er fyrir á fleti. Ekki eru allir Samfylkingar jafnhrifnir af hinum nýja félaga. Oddvitar flokksins í hinum ýmsu kjördæmum eru sagðir með skjálfta í hnjánum vegna innkomu Rósu Bjarkar sem hefur á sér orð fyrir dugnað og mun sækjast eftir toppsæti. Fari hún fram í Kraganum eins og síðast þá mun hún sækja að Guðmundi Andra Thorssyni, alþingismanni og rithöfundi, sem er afar skrúðmæltur en þykir ekki hafa látið mikið að sér kveða á þingi. Hann gæti reynst fallvaltur ef Rósa tekur slaginn við hann …
Rósa veldur titringi

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
