Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er sakaður um einelti og ofsóknir gegn eigin félagsmönnum. Tilefnið er að formaðurinnn herskái stóð fyrir mótmælum á skrifstofu lífeyrissjóðsins Gildis. Stjórn VR fékk senda formlega kvörtun vegna hegðunar baráttumannsins Ragnars Þórs sem er sagður hafa ógnað stjórnendum og almennu starfsfólki lífeyrissjóðsins með nærveru sinni. Þetta gerðist í kjölfar mótmæla sem áttu sér stað á skrifstofu Gildis í síðustu viku þar sem þrýst var á sjóðinn að koma til móts við Grindvíkinga og fella niður vexti og frysta afborganir af húsnæðislánum.
Morgunblaðið segirt frá þessu og vitnar í Árna Guðmundsson framkvæmdastjóra Gildis varðandi ótta starfsmanna og stjórnenda. Í þessu samhengi er vert að taka fram að Stefán E. Stefánsson, blaðamaður Moggans, var þá sínum tíma felldur af stóli formanns og hefur síðan andað köldu milli hans og Ragnars. Framsetning Moggans og undirliggjandi afstaða kann að litast af þeim illindum …
Ragnar ógnar sínu fólki

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
