Fullkomin óvissa ríkir um meirihlutamyndun í Reykjavík. Líf Magneudóttir, foringi VG, stal sendunni í gær þegar hún tilkynnti að flokkur hennar hefði ekki áhuga á að ræða nýjan meirihluta á grunni þess gamla. Með þessu sneri hún baki við Degi B. Eggertssyni borgarstóra og öðrum þeim sem vildu blása nýju lífi í meirihlutann með því að taka fleiri flokka um borð. Samfélagsrýnirinn Illugi Jökulsson er einn þeirra sem undrast mjög útspilið. „Eitthvað bix til að þóknast Katrínu,“ skrifaði hann á Facebook. Nú gengur maður undir manns hönd til að sannfæra Líf um að taka þátt í að endurreisa meirihlutann með Sósialistum eða hverjum þeimn sem vill halda Degi við stjórnvölinn áfram. Líklegra er þó að til verði nýr meirihluti á gömlum grunni með Einar Þorsteinsson sem kjölfestu. Innan Framsóknarflokksins þykir fráleitt að Einar fari með Sjálfstæðisflokknum sem liggur lágt vegna bankabrallsins með Íslandsbanka. Bent er á að Sjálfstæðisflokkurinn sé helsta auðlind Framsóknarflokksins þangað sem hægt sé að sækja kjósendur í hrönnum og ástæðulaust sé að skemma þau gjöfulu mið …
Líf án Dags

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
