Miðflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á í umtalsverðum vanda ef marka má skoðanakönnun Fréttablaðsins. Flokkurinn er nú með aðeins 6,7 prósenta fylgi og hefur ekki mælst minni síðan Klaustursmálið svonefnda var í hámæli og til meðferðar siðanefndar Alþingis. Svo er að sjá sem málflutningur Miðflokksins réttindi intersex barna undanfarið hafi ekki skilað árangri og Klausturkarlar því í klemmu. Flokkur fólksins á einnig í vanda og er við það að detta út af þingi. Síðasta upphlaup flokksins var í kringum ásakanir um meintan rasisma Ásgerðar Jónu Flosadóttur, varaþingmanns og formanns Fjölskylduhjálparinnar, sem Inga Sæland, formaður flokksins, telur vera eitt stórt samsæri til að koma höggi á sig. Báðir hafa þessir flokkar rekið róttæka stefnu gegn því að útlendingar fái að koma lítt heft inn í landið …
Klausturkarlar í klemmu

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
