„Er ekki dálítið merkilegt að fjölmiðlar skuli enn taka hluti hráa upp eftir Vigdísi H. og Eyþóri Arnalds?“ spyr Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á Facebook. Hann gagnrýnir fréttaflutning Moggans af kaupum borgarinnar af húsi við Kleppsveg þar sem leikskóli á að koma í stað kynlífstækjabúðar. En það er ekki deilt um það hvort það eigi að koma leikskóli þar sem áður voru seld leikföng fyrir fullorðna. Heldur snýst málið um það hvort stefni í nýtt Braggamál vegna umframkeyrslu á kostnaði. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, kallar framkvæmdina óvissuferð og bendir á mörg dæmi um óráðsíu meirihlutans. Gárungar í Vesturbænum vilja kalla að verkefnið fái yfirskriftina Klámbúð Dags B. sem er auðvitað ósvífni og hið versta rangnefni á hinni umdeildu framkvæmd. En málið gæti undið upp á sig og orðið meirihlutanum þungbært …
Klámbúð Dags B.

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
