Laugardagur 24. janúar, 2026
5.8 C
Reykjavik

Halla gagnrýnd

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, þykir um margt vera glæsilegur fulltrúi lands og þjóðar. Fjölmargir horfa til hennar aðdáunaraugum og mæra bæði hana og embættið. Svo eru aðrir sem eru gagnrýnni á frammistöðu forsetans. Jón Viðar Jónsson leikhúsfæðingur brást reiður við kyrrsetu Höllu sem ekki mætti á minningarathöfn um Helförina í Auschwitz hvert ráðmenn heimsins fjölmenntu. „Engar skýringar gefnar. Hún bara má ekki vera að þessu,“ skrifar Jón á Facebook og segist ekki vilja svona forseta.

Jón Viðar uppskar bæði lof og last fyrir að skammast í forsetanum. Meðal þeirra sem sýndu honum stuðning er síða sem ber heitið Kvikmyndafélagið Umbi en það félag er í eigu Guðnýjar Halldórsdóttur leikstjóra. Þar segir í athugasemd að Jón eigi að þakka fyrir þann sparnað sem hlýst af kyrrsetu Höllu forseta. „Hún er Flórídakona og Tene, það er öllu ódýrara fyrir budduna okkar …“.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -