Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Guðlaugur Þór vill stólinn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það molnar stöðugt meira undan Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins. Fyrrverandi og núverandi þingmenn stíga fram  og krefjast uppgjörs gagnvart forystunni og margir efast um að rétta fólkið leiði flokkinn. Líkurnar á áframhaldandi stjórnarsamstarfi við Vinstri-græna minnka stöðugt. Engum dylst að eldar loga á milli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og Bjarna og vandséð um framhald á samstarfi þeirra. Um árabil hefur verið lítt falinn klofningur innan Sjálfstæðisflokksins. Formaðurinn og Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra eiga nánast enga samleið og grefur hvor undan öðrum. Stórsigur Guðlaugs Þórs í prófkjöri flokksins þykir gefa honum byr undir báða vængi og stuðningsmenn hans telja sjálfgefið að hann taki við flokknum. Sjálfur starir hann á formannsstólinn. Aðrir telja það vera hið mesta óráð að fela honum stjórn flokksins með tilheyrandi klofningi. Niðurstaða komandi kosninga mun ráða örlögum Bjarna og því hvernig framvindan verður hjá Guðlaugi Þór…

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -