Börn leikarans Gísla Rúnars Jónssonar sem lést í vetur eru að slá í gegn með sölu á andlitsgrímum með þekktum frösum leikarans: Fór í banka, ekki banka, Afsakið hlé og Sagan þín er ekki búin, stendur á grímunum sem hafa rokselst á vefnum tiska.is svo ekki hefst undan að pakka og koma í póst. Það fallega er að hagnaðurinn rennur til samtaka sem starfa í þágu þeirra sem glíma við þunglyndi og aðra geðsjúkdóma. Það var þunglyndi leikarans sem varð til þess að hann tók eigið líf. Fegurðin í málinu er að góðverk eru nú gerð í hans nafni eftir dauðann. Með þessu mun væntanlega vera hægt að bjarga einhverjum sem nú eru í sömu sporum og leikarinn var seinustu æviár sín …
Góðverk eftir dauðann

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
