Bryndís Haraldsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, þykir á köflum vera eldklár og pólitískt klók. Ekki hefur verið algengt að hún missi fótanna í umræðunni. En nú er hún í skotlínu þeirra sem láta sér annt um það fólk sem leitar eftir hæli á Íslandi. Illugi Jökulsson rithöfundur fer í hana með kjafti og klóm eftir að hún sakaði flóttamenn, sem vísað var úr landi, um að ljúga því að þau séu lent á götunni í Grikklandi. „Þegar verið að segja að það sé verið að senda fólk á götuna, svo er ekki,“ hefur Illugi eftir Bryndísi. Aðspurð um flóttamann sem hélt til á garðbekk á Grikklandi var svar hennar einfalt: „Ég vona að hann fái inni einhvers staðar.“
Bryndís kölluð lygari

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
Illugi spyr hvort Bryndís hafi enga sómatilfinningu og leggur til að hún verði send til Grikklands til að komast að sannleikanum „svo hún sé ekki að ljúga upp á saklaust fólk“ …
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
