Helgi Magnússon. útgefandi Fréttablaðsins, Hringbrautar og DV, er væntanlega áhyggjufullur vegna lesturs á blöðum hans. Nýjustu mælingar sýna að Fréttablaðið er aðeins með 33 prósent lestur og hefur tapað fjórða hverjum lesanda á síðustu þremur árum. Frá 2010 hefur blaðið misst helming lesenda sinna. Þá er lestur DV innan við 5 prósent sem er langt frá því besta á þeim bæ og helmingur þess sem var 2018 þegar yfir 10 prósent lásu blaðið. Það alvarlegasta í stöðunni er að Bændablaðið sem Hörður Kristjánsson ritstýrir er með hátt í 30 prósenta lestur og nálgast Fréttablaðið. Þvi skal þó haldið til haga að Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega en Fréttablaðið fimm sinnum í viku. Helgi útgefandi er þaulreyndur rekstrarmaður og ólíklegt annað en hann nái tökum á rekstrinum en það mun væntanlega kosta bæði svita og tár …
Áhyggjur á Fréttablaðinu

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
