Laugardagur 14. mars, 2026
-1.7 C
Reykjavik

Tobba Marínós á afmæli í dag: „Þetta er barinn sem mamma þín vill að þú farir á“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjölmiðlakonan og vertinn Tobba Marínós sem heitir fullu nafni Þorbjörg Alda Birkis Marinósdóttir, á afmæli í dag. Er þetta í 37 skipti sem Tobba fagnar afmælisdegi sínum á ævinni.

Tobba hefur komið víða við í gegnum árin. Hefur hún meðal annars starfað sem blaðamaður á Séð og heyrt, séð um sjónvarpsþættina Djúpa laugin og Tobba á Skjá 1. Þá hefur hún einnig gefið út bækur og svo var hún ritstjóri DV frá apríl 2020 til mars 2021. Í haust opnaði hún Grenólabar á Granda ásamt móður sinni. Á barnum er seldur Nicecream sem er ís gerður einungis úr frosnum ávöxtum og hnetumjólk og því laus við allan viðbættan sykur og dýraafurðir.

Í viðtali við DV sagði Tobba að landsmenn taki vel í þessi nýjung hennar og bendir á að þetta sé fyrsti sykurlausi barinn. „Þetta er barinn sem mamma þín vill að þú farir á.“  „Allavega vill mamma mín það.“

Mannlíf óskar Tobbu til hamingju með afmælið.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -