Manst þú eftir hljómsveitinni Elektra sem komst upp úr undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrir tíu árum síðan með laginu Got No Love?
Stór hluti íslensku þjóðarinnar sat límdur fyrir framan sjónvarpið á laugardaginn og fylgdist með úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þá kom í ljós að Hatari mun keppa í Eurovision fyrir hönd Íslands.
Heil tíu ár eru liðin síðan Jóhanna Guðrún fór út fyrir hönd Íslands í Eurovision með laginu Is it true. Þetta var rifjað upp þegar hún steig á svið á laugardaginn og tók lagið sem tryggði henni annað sætið í Eurovision.
En þá er gaman að líta til baka og rifja upp hvað átti sér stað í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2009. Manst þú til dæmis eftir hljómsveitinni Elektra sem komst upp úr undankeppninni árið 2009 með laginu Got No Love? Séð og heyrt fjallaði um hljómsveitina þegar hún komst upp úr undankeppninni og ljósmyndari blaðsins fór með hljómsveitinni á djammið á Jacobsen seinna um kvöldið.
Manst þú eftir Elektra?

