Fimmtudagur 15. janúar, 2026
0.8 C
Reykjavik

Stefán segir tvær þjóðir búa á Íslandi: „Best að hrófla ekkert við þessu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stefán Pálsson segir tvær þjóðir búa á landinu.

Uppstigningadagur er næstkomandi fimmtudag en þá fá flestir landsmenn frí í vinnu sinni og skóla. Stjórnmála- og bjórfræðingurinn Stefán Pálsson skrifaði Facebook-færslu um komandi frí en hann segir tvær þjóðir búa á landinu en hér má lesa færsluna:

„Það búa tvær þjóðir í þessu landi. Annars vegar við – skynsami meirihlutinn – sem vitum að bestu vikurnar eru þær með fimmtudagsfrídegi. Svo er það hin fylkingin – sú með ranghugmyndirnar. Með reglulegu millibili stíga einhver úr því liði fram, stinga upp á að slíkir frídagar séu færðir yfir á föstudaga og reikna svo með að vera borin á gullstól fyrir hugmyndina.“

Erna nokkur skrifaði athugasemd við hina spaugilegu færslu Stefáns, en hún er á því að best sé að láta þetta ósnert: „Best að hrófla ekkert við þessu. Við gætum misst þessa frídaga eins og Danir misstu store bededag í fyrra…“

Agnar Kristján bætti við þriðja hópinum í athugasemd sinni: „Þriðji hòpurinn erum við sem segum að þetta eigi að vera fjögra daga helgar.“

Geir nokkur er með á hreinu hvernig fólk vill frí á fimmtudögum: „Fólkið sem elskar fimmtudagsfrídaga, er sama fólkið og vinnur þannig vinnu að það getur tekið sér frí á föstudegi því það er þegar bara hálfur dagur fyrir þau.“

- Auglýsing -

Elín er sammála Stefáni: „Ég er í þínu liði Stebbi. Fólk sem þolir ekki að eiga stakan frídag fyrir sig, með sjálfum sér eða fjölskyldu og vinum þarf að tengjast betur tilgangi lífsins. Kunna að njóta.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -