Sunnudagur 10. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Sonur Ronaldo og Georginu lést í fæðingu: „Við munum alltaf elska þig“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Það er með okkar dýpstu sorg sem við neyðumst til að tilkynna að litli drengurinn okkar er látinn.“

Svo hefst tilkynning frá þeim Cristiano Ronaldo og Georginu Rodriguez. Sonur eins besta fótboltamanns í heimi og kærustu hans átti að koma í heiminn í gær en lést í fæðingu. Þau Georgina og Ronaldo áttu von á tvíburum, stúlku og dreng. Stúlkan lifði af. Parið segir þá staðreynd það eina sem gefi þeim vilja til þess að lifa á þessari stundu.

„Þetta er mesti sársauki sem foreldri getur upplifað. Aðeins fæðing litlu stúlkunnar okkar færir okkur styrkinn til þess að lifa á þessari stundu, með smá von og hamingju.“

Parið er þakklátt fyrir þá aðstoð og umönnun sem þau hafa fengið. Þau óska eftir frið frá fjölmiðlum á næstunni.

„Við viljum þakka læknunum og hjúkrunarfræðingunum fyrir þeirra einstöku umönnun og stuðning. Við erum öll eyðilögð yfir missinum og óskum vinsamlega eftir næði á þessum erfiðu tímum.

Litli drengurinn okkar, þú ert engillinn okkar. Við munum alltaf elska þig.“

- Auglýsing -

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -