Mánudagur 16. febrúar, 2026
-4.2 C
Reykjavik

Ragga Sveins til Eldrún Pilates: „Kemur inn á hárréttum tíma“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ragnhildur Sveinsdóttir snýr aftur til Íslands eftir dágóða fjarveru og tekur til starfa sem pilateskennari hjá Eldrún Pilates í byrjun desember. Ragnhildur sem nýverið lauk kennaranámi frá Exhale Pilates London hefur verið viðloðandi heilsu- og íþróttabransann í fjölda ára og kennt pilates bæði í London og Malmö. Sjálf hefur hún stundað pilates í um 12 ár og því enginn nýgræðingur í greininni. 

„Það er ekki lítill fengur í því að fá Röggu til liðs við okkur enda fagmaður fram í fingurgóma og reynslumikil í faginu. Pilates æfingakerfið þrælvirkar til að bæta bæði líkamlega og andlega heilsu, þetta vita Íslendingar og þess vegna hefur það aldrei verið vinsælla að iðka pilates. Ragga kemur því inn á hárréttum tíma því það er óhætt að segja að þörf sé á kröftum hennar,“ segir Elín Ósk Jónsdóttir, annar eigandi Eldrún Pilates.

Eldrún Pilates var stofnað árið 2016 og er stúdíóið staðsett í Skipholti 50b en þar er að finna öll þau tæki sem þarf til að kenna einkatíma, dúótíma og hópatíma. 

Ragnhildur segir spennt fyrir að snúa aftur heim: „Ég er spennt fyrir að snúa aftur heim, taka þátt í því að breiða út boðskapinn um hversu öflugt æfingakerfi pilates er og hjálpa iðkendum að koma sér í og halda sér í topp pilates formi. Það er góð tilfinning að miðla því til annarra sem maður veit sjálfur að virkar og það er einmitt það sem ég ætla mér að gera“.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -