Playboy-stúlkan Ariane Bellamar er látin en hún var aðeins 46 ára gömul.
Samkvæmt dánarvottorði sem fjölmiðlar vestanhafs hafa undir höndum fékk fyrirsætan hjartaáfall á aðfangadag í fyrra. Auk þess að vera fyrirsæta kom hún fram í þáttunum Beverly Hills Nannies og The Millionaire Matchmaker. Þá lék hún einnig lítil hlutverk í kvikmyndunum Suicide Squad og The Hangover Part III.
Hún komst í fréttirnar árið 2017 þegar hún ásakaði Entourage leikarann Jeremy Piven um að hafa káfað á sér á kvikmyndatökustað og í Playboy-höllinni en Piven neitaði ásökunum hennar.
Fyrrum eiginmaður Bellamar hefur stofnað til GoFundMe fyrir jarðarfarkostnaði fyrirsætunnar.
Playboy-stúlkan Ariane Bellamar bráðkvödd

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -