Fimmtudagur 14. maí, 2026
4 C
Reykjavik

Einn vinsælasti hlaðvarpsþátturinn í pásu: „Við vildum hvíla okkur áður en það yrði að vandamáli“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einn allra vinsælasti hlaðvarpsþáttur landsins er kominn í pásu. Í gær birti Flosi Þorgeirsson, gítarleikari Ham og annar stjórnenda Drauga fortíðar, yfirlýsingu frá þeim Baldri Ragnarssyni, tónlistarmann og hinum helmingnum í þættinum, í umræðuhópi á Facebook.

Þar tilkynntu þeir félagar að Draugar fortíðar, sem er einn allra vinsælasti hlaðvarpsþáttur á Íslandi, færi nú í pásu um óákveðinn tíma. Hér er yfirlýsingin í fullri lengd:

„Heil og sæl ágæta fólk.
Nú er þriðjudagur og vanalega væri ég að skrifa hér til að tilkynna að von væri á nýjum þætti skömmu eftir miðnætti.
Nú kveður við annan tón því ég er að tilkynna ykkur að það kemur EKKI þáttur í þessarri viku og reyndar ekki í bráð. Við þurfum að taka okkur pásu. Ekki halda að við séum orðnir leiðir á þessu. Þvert á móti. Okkur finnst þetta enn jafn gaman og skemmtilegt. Hins vegar eru Draugarnir skemmtiefni, hliðarverkefni en ekki aðalvinnan okkar. Maður þarf að átta sig á hvenær nauðsynlegt er að gera hlé.

Stuðningsfólk okkar á Patreon sýpur nú eflaust hveljur en þið þurfið ekki að örvænta. Við höldum áfram að gera þætti fyrir ykkur. Næsti þáttur kemur á morgun en líklega seinnipart dags.

Ég vildi að ég gæti sagt hvenær við snúum aftur en við bara hreinlega vitum það ekki sjálfir. Best að lofa ekki upp í ermina á sér.

Við höfum staðið vaktina í hverri viku síðan í maí 2020 svo eflaust geta mörg ykkar nýtt tímann til að hlusta á þætti sem eru á biðlistanum.
Takk innilega fyrir áhugann, hrósið og ábendingar sem við höfum fengið. Þessi hópur er orðinn afar fjölmennur og skemmtilegur og vonandi verður hann vel virkur áfram.
Hafið það sem allra best.
Baldur og Flosi.“

Mannlíf hafði samband við Baldur og spurði hann nánar út í ákvörðunina um pásuna.

Það var bara komin þreyta í okkur og við vildum hvíla okkur áður en það yrði að vandamáli. Þetta er nefnilega það skemmtilegasta sem við gerum og við viljum klárlega ekki koma okkur í þær aðstæður að Draugarnir hætti að vera það. Þannig að þetta er nú bara pása þar til við teljum okkur klára í slaginn aftur!

- Auglýsing -

Aðspurður um það hvort einhver önnu hlaðvarpsverkefni væru á döfinni hjá þeim sagði hann ekki svo vera. Engin önnur verkefni niðurjörfuð sem slík, bara að passa upp á það sem manni þykir vænt um.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -