Anna Kristjánsdóttir er eins og landsmenn vita, orðheppin með eindæmum og í raun drepfyndin. Á Facebook heldur hún úti dagbók en hefur síðustu ár búið á Tenerife eða Paradís eins og hún kallar spænsku eyjuna.
Í nýjustu færslu sinni er Önnu tíðrætt um knattspyrnuleiki liðinnar helgar.
„Dagur 1175 – Klausturbar.
Ég skrapp á Klausturbar (Nostalgíu) í gær, ekki til að slúðra um konur eins og meðlimum Miðaldaflokksins er tamt, frekar til að borða pönnukökur og drekka gos því ekki má ég drekka bjór þegar ég er á Mjallhvíti. Þegar á Klausturbar var komið var allt lokað og læst og ég fór að örvænta. Hvar eru ábótinn og abbadísin á Klausturbar? Eftir nokkra stund mættu þau bæði og opnuðu húsið og mér tókst að óska ábótanum til hamingju með sigur hans manna hjá Sameinuðum Lýðsverjum (Leeds United) gegn einhverju liði í peningadeildinni. Þau hjónin voru svo ánægð með kveðjuna að ég þurfti nánast ekkert að borga fyrir pönnukökurnar og kókið.“
Í miðkafla færslunnar segir hún frá beiðni sem henni barst á „Klausturbar“ sem hún misskildi illilega:
Við Helena fengum okkur dýrindis nautasteik með bökuðum og bernaisse en síðan var haldið á Búkkann og felldir nokkrir bjórar með Pétri áður en ég þurfti að halda heim á leið og skrifa pistil morgundagsins.“
Að lokum skrifar Anna meira um úrslit helgarinnar, bæði úr fimmtu deildinni bresku sem og úrvalsdeildinni:

