Þriðjudagur 13. janúar, 2026
-3.2 C
Reykjavik

Nýtt frá Fritz Hansen

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli ítalska hönnuðarins Vico Magistretti hefur Fritz Hansen sett á markað Vico Duo-stólinn sem upphaflega var hannaður árið 1997. Stólarnir eru hannaðir með það í huga að auðvelt sé að stafla þeim upp svo þeir taki sem minnst geymslupláss þegar þeir eru ekki í notkun. Þeir henta vel í breytileg rými sem þurfa að geta hýst margs konar viðburði eins og í fundaherbergi, ráðstefnusali og veitingasali svo dæmi sé tekið. Einnig henta þeir vel sem borðstofustólar eða aukastólar í heimahúsum. Einkunnarorð Magistretti voru þau að engin afsökun væri til fyrir slæmri hönnun og eru það orð að sönnu. Stólarnir fást í þremur útgáfum: eik, hnotu og svartmáluðum aski. Fæturnir eru úr stáli og hægt er að velja um svarta duftlakkaða fætur eða krómaða en einnig er hægt að fá stólana með örmum eða armalausa.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -