Svo virðis sem aukin vopnakaup ungmenna sé staðreynd hér á landi. Mannlíf birtir mynd af auglýsingu þar sem vopn eru til sölu.
Guðrún Ágústa Ágústsdóttir, uppeldis-, fíkni- og fjölskyldufræðingur, segir í viðtali við Rúv í morgun að hún taki undir orð lögreglumanns sem ræddi við Rúv um helgina, um aukningu grófra ofbeldisbrota. Segir hún ungmennin útvega sér ólöglegan varning á snjallforriti og að að hún hafi rætt við marga sem hafa tjáð henni að þeir beri ýmiskonar vopn á skólatíma.
Um er að ræða snjallforrit á borð við Telegraph þar sem maður getur verið nafnlaus og því erfitt að hanka mann á ólöglegri hegðun. Hér fyrir neðan má sjá hóp inni á Telegraph sem ber heitið Vopnamarkaðurinn en þar er maður að selja sveðju, brýni og „kit“ sem seljandinn segir að hafi kostað 13 þúsund að „pólera og pússa shiny“.

Mynd: Aðsend skjámynd

