Miðvikudagur 14. janúar, 2026
-3.2 C
Reykjavik

Nauðungarvistuð á geðdeild eftir að maðurinn hélt framhjá henni: „Ég finn fyrir grátinum innra með mér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kremena Kovacheva-Demireva var vistuð nauðungarvist á geðdeild eftir að barnfaðir og sambýlimaður hennar hélt ítrekað framhjá henni. Geðlæknir og maðurinn hennar unnu saman að því að hún yrði lögð inn. Kremena upplifði sig svikna, í landi með lítið tengslanet, særða og niðurlægða.

Kremena segir sögu sína á Facebook-síðunni Við erum hér líka, huldufólkssögur úr nútímanum, en það eru hjónin Alda Lóa Leifsdóttir og Gunnar Smári Egilsson sem skrifa þar samtímasögur öryrkja á Íslandi.

Kremena segir að hún hafi einfaldlega verið kona með læti og því hafi henni verið stungið inn á geðdeild. Að konur í gegnum tíðina sem voru með læti hafi oft verið flokkaðar sem móðursjúkar og hysterískar. Kremena var hins vegar aðeins að vakna við vondan draum að hún var í vondu hjónabandi þar sem valdahlutföllin voru mjög skökk og það var hægt að stinga henni inn í nauðungarvist án hennar samþykkis.

„Þegar hann sveik mig var mér mjög brugðið. Ég átti ekki ekki von á þessu og eitthvað brotnaði innra með mér. Ég reifst og skammaðist og grét. Ég var auðvitað sturluð af reiði. Ég braut hluti, en ég lagði ekki hendur á neinn,“ segir Kremena.

„Ég var alveg með þennan mann minn í guðatölu, ég þurfti hvorki netfang né bankareikning að hans mati. Ég bara vann á ungbarnaleikskólanum, elskaði vinnuna mína og launin fóru inn á reikninginn hans. Þetta endaði með því að geðlæknir sem ég hafði kynnst í gegnum fæðingarþunglyndi nokkrum árum fyrr sannfærði mig um að leggjast inn á geðdeild. Hann kynnti dvölina fyrir mér eins og hvíldarfrí frá heimiliserjunum.“

Mynd Alda Lóa Leifsdóttir

Dvölin á geðdeild var allt annað en hvíldarfrí segir Kremena. Um leið og hún mætti á deildina voru eigur hennar gerðar upptækar. „Ég var látin skipta um föt og fara í spítala nærföt og slopp og stungið inn í hvítt herbergi og tómt ekkert nema rúm og eitt tímarit. Ég fékk ekki að hitta neinn og í næsta herbergi svaf vaktmaður. Ég var bæði reið og örvingluð.“

- Auglýsing -

Kremena kærði nauðungarinnlögnina og komst að því að það var maðurinn hennar og geðlæknirinn sem höfðu unnið saman og skrifað undir innlagnarbeiðnina. „Ég var með kramið hjarta en ég var ekki hættuleg. Ég var kannski að kasta farsímum og eyða peningum en ekki að meiða fólk. Inni á Geðdeild er mjög veikt fólk.“

Kremena er öryrkji en hún fær aðeins skertar bætur frá Tryggingastofnun þar sem hún fæddist ekki á Íslandi. Þar skiptir engu hvort hún hafi búið hér meiri hluta ævinnar og fætt hér tvo drengi. Kremena á erfitt með að ná endum saman og vinnur þrjú mismunandi hlutastörf. „Ég vildi að hver mánaðamót þyrftu ekki að vera eins og rússnesk rúlletta. Ég veit aldrei hvað TR sendir mér, hvort að ég skuldi þeim eða hvort að þeir borgi mér yfirhöfuð eitthvað. Ég fæ ekki að tala við fólkið sem reiknar út og tekur ákvarðanirnar. Þau sitja ofar í húsinu. Ég tala við þjónustufulltrúana niðri sem sjá bara hvað stendur á skjánum,“ segir Kremena.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -