Slökkviliðið setti fram kröfu um bættar eldvarnir í húsnæði áfangaheimilisins Betra líf sem staðsett er í Kópavogi. Krafan setti starfssemina úr böndunum um tíma en sagði Arnar Hjálmtýrsson, forstöðumaður heimilisins, að stefnt hafi í að bera þyrfti út hluta vistmanna í vikunni en hafi þeir brennt allar brýr að baki sér.
„Þetta slapp fyrir horn,“ sagði Arnar í viðtali við Fréttablaðið og hefur lausn náðist í deilu Kópavogsbæjar vegna málsins. Samkvæmt heimildum blaðsins reyndist mögulegt að færa íbúana á eina hæð í stað tveggja en nokkrir þurftu að fara í annað húsnæði. Arnar taldi að mennirnir hefðu verið sendir út í opinn dauðann ef lausn hefði ekki fundist í málinu.

