Á Fáskrúðsfirði má finna til sölu ódýrasta einbýlishús landsins, að Skólavegi 15.

Verðið er 13.8 milljónir króna. Fjögur herbergi eru í einbýlishúsinu.

Húsið er er 59 fermetrar að stærð.

Það er Lindin fasteignir sem sjá um söluna og lýsa húsinu svona:

„Baðherbergi með sturtu er inn úr forstofunni. Úr forstofu er komið inn á gang.
Stofa er eftir endilangri suðurhlið hússins.

Eldhús er við hlið stofunnar og er opið á milli. Ný eldhúsinnrétting. Lítið og snyrtilegt þvottahús er í húsinu. Á efri hæð eru 2 svefnherbergi og pláss á stigapalli.

Lítill geymsluskúr í garði fylgir. Húsið hefur verið talsvert endurnýjað að innan á síðustu mánuðum. Nýjar flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Nýtt parket á gólfum.

Ný klæðning í lofti á neðri hæð. Veggir á neðri hæð klæddir upp á nýtt og einangraðir. Gólf á neðri hæð styrkt.

Brunabótamat er 20.500.000 kr. og fasteignamat 9.320.000 kr. og áhvílandi er 0 kr.
Húsið var byggt árið 1930.
Gott útsýni, garður og þvottahús.“

