Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Viðkunnalegi kántríkóngurinn Hallbjörn var kynferðisglæpamaður – Dópnotkun í kjölfar misnotkunar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í júnímánuði árið 1935 fæddist drengur á Blönduósi sem talinn var andvana. Það var síðan fyrir hreina tilviljun að hjúkrunarkona sem átti leið um líkhúsið sá lífsmark með drengnum. Brást hún fljótt við og kom barninu til bjargar. Var drengurinn skírður í höfuði á hjúkrunarkonunni Jóhönni, ljósmóðurinni Hallberu og Birni eiginmanni hennar.

Kántríkóngurinn Hallbjörn Jóhann Hjartarson var í heiminn borinn. Hallbjörn ólst upp á Skagaströnd og starfaði við fiskvinnslu og byggingarvinnu og var meðal annars í 10 ár verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Húnvetninga.

Frægðin ber að dyrum

Fyrst kom Hallbjörn fyrir augu landsmanna ári 1954 þegar nýr dægurlagasöngvari var kynntur til sögunnar með tónleika í Breiðfirðingabúð. Söng hann og fór með gamanmál við góðar undirtektir. Þremur árum síðar kemur fram í Vísi að Hallbjörn og Arný Hentxe hafi opinberað trúlofun sína á Skagaströnd.

Með árunum skemmti Hallbjörn sveitungum sínum í Leikklúbbi Skagastrandar en það er ekki fyrr en upp úr 1980 að frægðarsól hans fer að skína fyrir alvöru meðal landsmanna.

Sneri hann sér þá alfarið að kántrítónlist að bandarískri fyrirmynd. Hann kom auk þess fram í kvikmyndinni Dalalíf og var stjarnan í heimildamynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Kúrekar norðursins.

- Auglýsing -

Íslenski kúrekinn hafði slegið í gegn.

Hallbjörn Hjartarson – Kántrý Lög (Kántrý 1) (1981, Vinyl) - Discogs

Hallbjörn opnaði útvarpsstöð á Skagaströnd svo og veitingastaðinn Kántríbæ en hróður þess barst víða. Hallbjörn samdi fjölda laga sem sum hver rötuðu á vinsældalista og gaf út breiðskífu sem var gerð fyrir „herra hans á himnum“. Hann kom reglulega fram í sjónvarpi og síðast en ekki síst hélt hann Kántríhátíð á Skagaströnd sem slóð ærlega í gegn.

- Auglýsing -

Ítrekaði Hallbjörn oft að hann fetaði veg drottins.

Fórnarlömbin stíga fram

En þjóðin átti eftir að kynnast annarri hlið á guðhrædda kúrekanum og fór fræðgðarsól hans að dala upp úr 2010. Barnabarn Hallbjörns steig fram og kvað afa sinn beitt sig alvarlegu kynferðisofbeldi. Brátt komu fram á sjónarsviðið fleiri piltar með sambærilegar ásakanir, þar af fleiri barnabörn.

Brotin munu hafa hafist árið 1999 og staðið til 2011. Hann var ásakaður um þrjú brot gegn öðrum piltinum frá 1999 til 2001 og tugi brota gegn hinum piltinum frá því hann var sjö ára og til átján ára aldurs. Hallbjörn mun hafa kysst annan drenginn tungukossum, káfaði á kynfærum hans, nauðgaði honum með munninum og neytt hann til að fróa sér.

Þjóðinni var illa brugðið við fréttirnar um að viðkunnalegi kántríkarlinn væri kynferðisglæpamaður.

Alvarleg líkamsárás

Það var síðan aðfararnótt 3. febrúar 2013 sem tveir piltar, 19 og 20 ára gamlir, brutust inn á heimili Hallbjörns og misþyrmdu honum illa. Ann­ar þeirra sló Hall­björn ít­rekað með kreppt­um hnefa í and­lit og höfuð. Hinn árás­armaður­inn sparkaði þris­var sinn­um með hné sínu í and­lit hans. Sögðu fórnarlömb Hallbjörns frá því hvernig þau urðu lokuð og leiddust út í dópnotkun í kjölfar misnotkunar hans. Hallbjörn lá gjörgæslu í átta daga eftir árásina og á sjúkrahúsi í nokkrar vikur í kjölfarið.

Svo fór að þeir voru dæmdir í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundna. Hallbjörn lá gjörgæslu í átta daga eftir árásina og á sjúkrahúsi í nokkrar vikur í kjölfarið.

„Ég sé hann á stundum úti á götu“

Hallbjörn var dæmdur árið 2014 til þriggja ára óskilorðsbundins fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gegn tveimur barnabörnum sínum.

Í frétt DV segi að Hallbjörn hafi neitað sök fyrir dómi en dómari kvað framburð hans reikulan og ótrúverðugan. Meðal sönnunargagna var bréf sem Hallbjörn skrifaði öðrum piltinum og móður hans, dóttur Hallbjörns. Þar þykir hann játa þrenn brot en um leið reyna að koma ábyrgðinni á piltinn. Dómarinn segir Hallbjörn hafa skaðað piltinn með brotum sínum og framferði hans við ritun bréfsins sé honum síst til málsbóta. Hallbirni var einnig gert að greiða piltunum 1.250 þúsund krónur í miskabætur.

Hallbjörn var 82 ára gamall þegar dómur féll og treystu fangelsismálayfirvöld sér ekki að taka við honum sökum aldurs. Því var honum gert að taka refsinuna út á hjúkrunaheimili á Skagaströnd þar sem honum var frjálst að fara ferða sinna. Þar dvelur hann enn í dag.

Í samtali við DV á sínum  tíma segist barnabarn helst vilja gleyma ofbeldinu afa síns, eftirköstunum og  atburðarásinni eins og hún lagði sig og leggja það að baki. Hann sagðist þó geta tekið undir að það sé óréttlæti að hann hafi farið í fangelsi meðan Hallbjörn hafi sloppið við það. Barnabarn hans býr á Skagaströnd.

„Ég sé hann stundum úti á götu, samt ekki oft, ég er svo oft úti á sjó,“ sagði barnabarnið í viðtali við DV.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -