Föstudagur 16. janúar, 2026
0.8 C
Reykjavik

„Við fjölskyldan erum þakklát fyrir að fá hann heilan heim“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Konráð Hrafnkelsson, sem hvarf frá heimili sínu í Brussel þann 30. júlí síðastliðinn, er fundinn heill á húfi. Móðir hans, Hlín Ástþórsdóttir, tilkynnti um þetta í færslu á Facebook í dag.

Konráð er 27 ára og búsettur í Brussel. Líkt og Mannlíf greindi frá hófst leit að honum 1. ágúst. Hlín segir það mikinn létti að hann sé nú í faðmi fjölskyldunnar.

Sjá nánar hér: Íslenskur maður horfinn í Brussel. 

„Við viljum þakka öllum fyrir hlýhug, kveðjur, bænir og allan þann stuðning sem okkur hefur verið veittur í leitinni að Konráði, allur sá stuðningur er ómetanlegur og verður aldrei þakkað nóg. Við fjölskyldan erum þakklát fyrir að fá hann heilan heim,“ segir Hlín.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -