Vargurinn var í stórræðum í veiðinni nýlega. Tæplega 30 gæsir felldar með tveimur haglabyssum.
Stórskyttan Snorri Rafnsson, oft kallaður Vargurinn birti ljósmyndir og myndband af nýjasta árangri sínum við veiðar, á Instagram reikningi sínum í gær. Þar sést hann notast við haglabyssu af Benelli týpunni en hátt í 30 gæsir lágu í valnum eftir að hann og félagi hans höfðu lokið sér af.

Margir velta því fyrir sér hvort hér sé um að ræða dulbúna, kostaða færslu fyrir Benelli sölusíðu og Kuldi netverslun enda er færslan kyrfilega merkt þeim báðum. Eitt er ljóst, þeir félagar verða ekki svangir yfir hátíðarnar.
View this post on Instagram

