Laugardagur 10. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Vandræðaleg mistök á Akureyri -Hvenær ætla bæjaryfirvöld að leiðrétta þetta?

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í nýjasti hverfi Akureyrar, Hagahverfinu svokallaða í syðsta hluta bæjarins er gata sem heitir Matthíasarhagi, eftir þjóðskáldinu Matthíasi Jochumssyni. En allar götur hverfisins bera nöfn þekktra Akureyringa. Má þar meðal annars nefna skáldin Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og Kristján frá Djúpalæk, auk þekktra kvenna svo sem Jóninnu Sigurðardóttur og hina harmrænu Geirþrúði Thorarensen.

En víkjum aftur að Matthíasarhaga.

Nýverið var gatan merkt á fjórum stöðum, með þar til gerðum götuskiltum líkt og tíðkast, en ekki vildi betur til en svo að á öllum fjórum er að finna stafsetningarvillu.

Á tveimur skiltanna vantar h.

Spyrja bæjarbúar sig hvenær bæjaryfirvöld ætli að leiðrétta mistökin?

Og á hinum tveimur er nafnið ritað með i en ekki í, líkt og rétt er.

Matthías fluttist til Akureyrar 1887 og var sóknarprestur bæjarbúa í áratugi. En eins og allir vita er texti þjóðsöngs okkar Íslendinga eftir Matthías.
Matthías andaðist 1920 og er ólíklegt að fleiri hafi mætt að einni jarðarför en þá. Að minnsta kosti á Akureyri.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -