„Það er algjörlega galið að sýnataka í leghálsspeglun sé framkvæmd án deyfingar. Svona mánuði áður fór ég og lét taka af mér lítinn fæðingarblett og var deyfð í drasl,“ segir í Twitter færslu en á miðlinum hefur töluverð umræða um hvernig staðið er að sýnatöku og keiluskurðum kvenna.
Vala spyr hvort fólk viti almennt að þegar kona fer í leghálssýnatöku þá sé lítill bútur skorinn úr leginu á henni án staðdeytingar og henni sagt að taka íbúfen áður.
„Væri það ásættanlegt ef bútur væri skorinn úr eista karlmanns? Ég þarf að fara árlega vegna þess að ég hef greinst með frumubreytingar og farið í keiluskurð. Mér finnst það mjög vont og það blæðir hjá mér í nokkrar vikur á eftir svo ég á til að fresta sýnatöku sem setur heilsu mína í hættu. Er til of mikils ætlast að fá staðdeyfingu?“
Halldóru finnst vera tvöfeldni í kerfinu. „Karlmenn sem fara í ófrjósemisaðgerð fá að velja hvort þeir vilji staðdeyfingu eða svæfingu.“
„Double standards er raunverulegt vandamál”
Fleiri konum finnst tvöfeldni vera ríkjandi. „Komst að því að það er EKKERT búið að rannska hormónastarfssemi í leghálsi sem er óskiljanlegt. Ef karlar væru með legháls finnst mér ólíklegt að staðreyndin væri enn sú sama.”
Ástríður fór í keiluskurð í morgun vegna frumubreytinga í leghálsi og var ysti hluti leghálsins fjarlægður. „Þetta var gert í staðdeyfingu en fyrir örfáum árum var þetta í svæfingu síðustu vikur reyndi ég endurtekið ná sambandi til að biðja um slævingu í sambandi við inngripið en án árangurs“.

