„Ég er að reyna að fá húsnæðislán og fékk synjun hjá bankanum á þeim forsendum að ég hafi ekki verið búsettur á landinu í þrjú ár. Svona er innflytjendum haldið föstum í leigugildrunni,” skrifar Matti á Facebook síðunni Away From Home – Complaining About Iceland.
Hann bætir við kveðju til bankakerfisins sem ekki við hæfi að birta enda reiður út í kerfið.
Fjölmargir hafa tekið undir skrif Matti. James segir að eftir þriggja ára háar leigugreiðslur og vinnu við láglaunastörf sé ekki við öðru að búast en að fólk sé búið að koma sér í skuldir. Þar með séu bankarnir komnir með aðra ástæðu til að synja fólki um lán. „Bankarnir geta ekki tapað á þessu kerfi, sama hvernig á það er litið”.
„Ég er búin að búa á Íslandi í þrjú ár og ég fæ ekki einu sinni kreditkort með lægstu mögulegu upphæð,” segir Julie. Hún segir fulltrúa Aur appsins hafa tjáð henni að til að hún fengi þetta „heimskulega” app, eins og hún orðar það, þyrfti hún að hafa haft fasta búsetu á landinu í fimm ár. Hún bætir við að jafnvel þótt hafi lagt fram gögn þess efnis að lánshæfi hennar væri til fyrirmyndar hafi hún meira að segja fengið synjun á 30 þúsund króna láni í bankakerfinu. „Ekki komið vel fram við nýja fólkið á Íslandi”.
Rob segir að sennilega sé ekki sama hvaðan fólk komi, sjálfur hafi hann ekki lent í neinum vandræðum í samskipti við bankakerfið en telur líklegt að það sé vegna þess að hann sé sænskur ríkisborgari.
Catarina segir að árið 2019 hafi hún fengið þær upplýsingar hjá Íslandsbanka að biðtíminn væri eitt ár en margir svara henni og segja að reglunum hafi verið breytt síðan þá og tíminn lengdur.
Dagmar er kaldhæðin. „Leggðu 50 sent inn á reikningin á Tortóla. Þá geturðu hvað sem er. Við lærðum það fyrir mörgum árum“.

