„Þetta var ekki hann, þetta er ekki hans persónuleiki.“ Unnusta mannsins sem skaut á hús og bíla á Egilsstöðum síðastliðinn fimmtudag, tjáði sig við DV í gær.
Maðurinn var að lokum skotinn af lögreglunni og í kjölfarið fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíku en tvísýnt var um líf hans á tímabili. Dvelur hann nú á almennri deild Landspítalans en var hann nýverið dæmdur í 2 vikna gæsluvarðhald.
Unnustan, sem á tvo syni úr fyrra hjónabandi, segist vilja varpa ljósi á manninn á bakvið verknaðinn, þetta hafi í raun ekki verið hann „þetta er ekki hans persónuleiki.“ Segir hún unnusta sinn ekki vera svona dags daglega. Telur hún unnusta sinn hafa verið í geðrofi þegar atvikið átti sér stað en vill ekki fara nánar út í atvikið, „ég vil bara tala fallega um hann og fjölskyldu hans. Ekkert annað.“
Eitt og hálft ár er síðan þau kynntust en segir unnustan í DV að hann hefði komið henni „strax fyrir sjónir sem afskaplega ljúfur maður.“ Hún féll strax fyrir honum enda sé hann „svo blíður og nærgætinn, týpa sem talar um tilfinningar sínar og átti auðvelt með það – allavega við mig.“ Konan segir að hún hafi gengið í gegnum erfiðleika og að alltaf hafi unnustinn staðið eins og klettur við hlið hennar, alltaf hafi ríkt mikill kærleikur á milli þeirra og að hann hafi látið hana líða eins og prinsessu með honum.
Þá segir hún ennfremur að hún hafi fundið fyrir ótrúlegum stuðningi og samkennd frá samfélaginu á Egilsstöðum en hún segist hafa hreinlega misst allt síðasta fimmtudag, „ég er búin að missa manninn minn sem ég elska út af lífinu, ég er búið að missa öryggið mitt, ég er búin að missa framtíð mína með honum. Húsnæðið mitt. Það er allt farið. Ég er ofboðslega brotin. Það er búið að kippa undan mér fótunum í orðsins fyllstu merkingu. Líf mitt er algjörlega hrunið.“ Hún segist þó eiga fjölskylduna, vinnuna og svo sé hún og barnsfaðir hennar miklir vinir.
Að lokum talar hún afar fallega til tengdafjölskyldu sinnar sem segir að hafi tekið henni mjög vel frá upphafi sambands þeirra, „mér hefur alltaf fundist þægilegt að vera í þeirra návist. Þau eru að ganga í gegn um mikinn harmleik.“

![skotaras_dalsel_egs_agust21_0026_web[1] skotárás](https://gamla.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/08/skotaras_dalsel_egs_agust21_0026_web1-696x385.jpg)