Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Una skilur ekki Íslendinga: „Má ég biðja um valmöguleikann?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Una Sighvatsdóttir,  sérfræðingur hjá embætti forseta Íslands, skilur ekki neyslubrjálæði Íslendinga þegar kemur að ís og skammtastærðum. Henni blöskraði hreinlega þegar hún fór og keypti sér lítinn bragðaref á dögunum.

Una tvítaði um ferð sína í ísbúðina og birti þar mynd af því sem átti að vera lítill bragðarefur. Bæði fannst henni ísinn ekkert lítill og þar að auki var hann alltof dýr að hennar mati.

„Í hvaða ameríkuvædda veruleika getur þetta talist vera „lítill“ skammtur af ís? Má ég biðja um valmöguleikann á allavega þriðjungi smærri bragðaref, á verði undir þúsund krónum?“

Þennan ís fékk Una þegar hún bað um lítinn.

Fjölmargir eru sammála Unu og tjá skoðun sína undir færsluna. Þórunn nokkur er hjartanlega sammála. „Þarft að kaupa pínulítinn. Ekki alveg jafn risavaxinn og lítill,“ bendir Þórunn á.

Hallbjörn er á móti svona ískaupum. „Aldrei að kaupa bragðaref! Lítill smábarnaís er málið, eins og stór ís var einu sinni,“ segir Hallbjörn.

Halli nokkur er svo hissa á þessari ísbúð, sem í þessu tilviki er Ísbúð Vesturbæjar. „Er þetta ekki líka eina ísbúðin sem er enn að vinna með frauðplast líkt og árið sé 1988? Rekst á þessar umbúðir út um allar koppagrundir,“ segir Halli.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -