Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Una orðlaus í Smáíbúðahverfinu: „Gott að finna náungakærleikanum í þessum ömurlegu aðstæðum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Una nokkur, íbúi í Smáíbúðahverfinu, á varla til orð yfir náungakærleikanum sem hún upplifði í gær eftir að dóttir hennar slasaðist illa á hjólaskautum við Réttarholtsskóla.

Una segir frá atvikunu í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar segir hún:

„Dóttir mín var að prakkarast í kvöld og fór á hjólaskautum niður svarta hjólarampinn við Réttó með þeim afleiðingum að detta illa og kom sprunga í rófubeinið. Maður á gangi með hundinn sinn kom til okkar og bauð aðstoð sína, lánaði mér jakkann sinn (ætlaði bara rétt að skjótast og fór út á stuttermabol og var að frjósa) og sótti síðan konuna sína sem er hjúkrunarfræðingur,“ segir Una og heldur áfram:

„TAKK KÆRLEGA góðu grannar (ég man ekki einu sinni hvað þið heitið því ég var í smá sjokki) TAKK fyrir að bjóða fram hjálp og vera til staðar fyrir okkur. Stelpan okkar er því miður smá löskuð en það grær og þetta hefði getað farið verr. Það var gott að finna fyrir náungakærleikanum í þessum ömurlegu aðstæðum. Takk.“

Haukur gleðst yfir náungakærleikanum í hverfinu. „Fallegur nágranna kærleikur. Batakveðjur til dóttur þinnar,“ segir Haukur. Sólveig nokkur er því sammála. „Fallegt og gott þegar nágrannar eru hjálpsamir. Óska dóttur þinni góðs bata,“ segir Sólveig.

Una fann á endanum hina góðu hverfisbúa sem hjálpuðu dóttur sinni. „Takk Vigdís og eiginmaður fyrir hjálpina!,“ segir Una. Og Vigdís sendir kveðjur til baka. „Verði ykkur að góðu, vona að hún jafni sig fljótt,“ segir Viðdís.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -